Ferill | RESUME

 
 

... hefur átt hug minn allan eftir að ég lét verða að því að hella mér út í hana þegar ég bjó í Singapore árið 1996, þá orðin 31árs gömul. Segja má að myndirnar mínar hafi af mörgu leyti mótast af hinu ólíka umhverfi sem ég hef búið í (Bandaríkin, Noregur, Singapore, Pólland, Slovenía og auðvitað Ísland) og af mjög svo ólíkum kennurum. Ég fæ mikið út úr því að ferðast og upplifa nýtt umhverfi. Svarthvítar myndir eru þær sem heilla mig mest, kannski af því að ég get unnið þær sjálf frá upphafi til enda á minn hátt. Ég nýt þess að verja heilu dögunum í myrkrarherberginu mínu, það er mín hugleiðsla. Ég læt hugann reika og hef gaman af því að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Oft er útkoman úr myndunum allt önnur en ég hef séð fyrir, stundum jákvæð en stundum neikvæð eins og gengur og gerist. Margar af þeim myndum sem mér þykir vænst um hafa orðið til þegar ég hef fylgt eftir innsæinu og ekki endilega skipulagt eða ákvarðað fyrirfram hvernig myndirnar yrðu. Oft tek ég myndir á ákveðnum stöðum einfaldlega vegna þess að mér líður vel þar. Það er svo stórkostlegt að getað fest á filmu þá stemningu og andrúmsloft sem maður upplifir og halda áfram að njóta þess seinna.

Mér þykir gott að staldra við einstöku sinnum í hversdagsleikanum og einfaldlega njóta þess sem er í kringum mig. Íslensk náttúra býður okkur að upplifa þjóðsögur ef við viljum. Hún hefur upp á svo margt að bjóða. Við íslendingar höfum löngum trúað að til séu álfar og huldufólk, tröll, önnur tilverustig o.þ.h. og er hvergi betra að upplifa það en á Íslandi. Það gerir hver á sinn hátt og með mismiklum hátíðleika.

Jóna Þorvaldsdóttir


Nám

1997-2000

Ljósmyndanám út frá European Institude of Photography, einkatímar Marian Schmidt og Izabela Jaroszewska, stofnendur skólans.

1999

Námskeið í olíumálun hjá Voitec Petinskiew í Varsjá.

2000

"Litir og form" einkakennsla í Ljubljana hjá Marco Modic ljósmyndara.

2001

"Handmade photograph" námskeið hjá Elisabeth Opalenik í The Workshops, Maine.

2001

Málun II hjá Ingu Þorey listmálara í Myndlistarskóla Reykjavíkur.

2003

"Innblástur" verklegt og bóklegt einkanámskeið hjá Izabela Jaroszewska nú skólastjóri European Academy of Photography.

2006

Námskeið hjá Mary Ellen Mark í Mexikó.

2008

"Introduction to alternative process" námskeið hjá Brenton Hamilton í The Workshops, Maine


Sýningar

2000

Samsýning og ljósmyndasamkeppni á vegum Warsaw Voice. Vann til fyrstu verðlauna.

2000

"Daglegt líf" Varsjá, Pólland.

2001

"Sjö dagar í Ljubljana. Slóvenía.

2003

"Draumkenndur raunveruleiki". Mokka í Reykjavík.

2003

"Þjóðsaga". Gallerí Fold.

2004

"Á mörkum veruleikans". Sverrissalur í Hafnarborg, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar.

2006

"Á mörkum veruleikans". Háskólinn í Varsjá.

2006

"Íslenskar furðuverur". Stara gallerí í Varsjá.

2006

"Móðir Jörð". Skotið, Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ljósmyndun ...

... has been a big part of my life since I decided to plunge into it when living in Singapore back in 1996 then 31 years old. One can tell that my photographs are some what influenced by both the different environment I have lived in , (USA,Norway,Singapore,Poland,Slovenia ,Iceland) and by my teachers. Travelling and discovering new and different locations gives me a great deal of inspiration. Black and white photography is what interests me the most, maybe beacause that way I can control the making of a picture from the beginning to the end. I enjoy working for days in my darkroom, that´s my meditation. Then my mind is at ease and I can set off of my imagination. The outcome in my pictures is sometimes different from what I imagined, sometimes better, sometimes worse. That´s just the way it goes. For me it´s best to follow my instinct, and sometimes I take pictures at certain location simply because I feel good about the place. It is wonderful to be able to capture a certain athmosphere on film that one experiences and continue to enjoy it later.

I like to take a moment once in a while in my everyday life, and simply enjoy what´s around me. If we want to, Icelandic nature can allow us to discover something beyond reality. It has so much to offer. We Icelanders have long belived in elves, trolls, life after death and so on. It is fantastic that everyone can discover such phenomena in Iceland in their own way with, though perhaps with a grain of salt.

Jona Thorvaldsdottir



Education

1997-2000

Photography from European Institude of Photography, private lessons with Marian Schmidt and Izabela Jaroszewska founders of the school.

1999

Oil painting course with Voitec Petinskiew in Warsaw.

2000

"Colours and form" private lesson with photographer Marco Modic.

2001

Handmade photograph, with Elisabeth Opalenic at The Workshops in Maine, USA.

2001

Oil painting with painter Inga Thorey at The School of Art in Reykajvik, Iceland.

2003

"Inspiration" intensive private course with photographer and leader of European Acacemy of Photography, Izabela Jaroszewska.

2006

Course with Mary Ellen Mark in Mexico.

2008

"Introduction to Alternative Process" Brenton Hamilton at the Workshops in Maine, USA.


Exhibitions

2000

Fellow exhibiton and photocompetition held by Warsaw Voice. Won first prize.

2003

Private exhibition at Mokka in Reykjavík.

2003

Private exhibiton at Gallerí Fold, art gallery in Reykjavík.

2004

"Borders" private exhibition in Sverrissalur at Hafnarborg, Institute of Culture and Fine Art, Hafnarfjord Iceland.

2006

"Mother Earth" in Reykjavik Photography Museum.

2006

Fellow exhibiton at Gallery STARA in Warsaw.

2006

"Borders" private exhibition in University of Warsaw, Poland.

Photography ...